hARD rOCK gALS

-

23.10.2006 23:27:36 / Salvör

NÝ SÍÐA

----------------- Justfornow ---------------------


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 17:24:56 / Salvör

HALLÓ GIRLIES!!!!!

Hvernig líst ykkur á að hefjast handa við nýja bloggsíðu......þetta grey er eitthvað svo old þannig að það væri nú gaman að finna nýtt æðislegt nafn fyrir síðu og nota hana svo almennilega!!!

Komið með hugmyndir!!!

Gætum svo hent inn myndum af okkur og einhverju skemmtilegu dótaríi!

Kv.Salvör


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 15:39:32 / magga_

Bloggdauði eða hvað........... ?

Já það er alveg hrikalega fyndið hvað við ákveðum alltaf að vera duglegar hérna og sv er bara engin hreyfing. Núna er liðinn mánuður síðan ég koma heim frá Tenerife sem var semsagt 28. júní og seinasta bloggið sem var skrifað hérna var frá mér þremur dögum áður en ég fór út.

Það er spurning hvort við eigum að lýsa yfir andláti þessarar síðu. Vil fá athugasemdir frá ykkur stelpur. Við erum auðvita allar hver með sína síðu svo það er spurning hvort við eigum að láta það nægja. Látið endilega vita hvað þið viljið.

Maggz :!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 22:18:22 / magga_

Tenerife

Ég er að fara til Tenerife eftir 3 daga!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

JEY!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

kv. magga


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 12:11:01 / smash

Ég hata tækni!!

og ef þið viljið hitta mig aftur verðiði barasta að heimsækja mig í HELLINN minn e-s staðar upp í sveit...þar mun ég búa  og lifa lífinu á lífrænan og Ótæknivæddan hátt...sjóða matinn minn á báli og drekkja lækjarvatn o.þ.h!!!!!arrrg...

Aldís out...

p.s. Vika og 2 dagar í heimkomu...


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 16:34:30 / magga_

HALELÚJA!!!!!!!!!!!!!!

Eftir langa mæðu náði ég að skrá mig upp á nýtt. Halelúja again.

Já ég skal reyna að vera dugleg að blogga hérna. Lofa absolutely engu.

En það var nú mikið að ég gat skráð mig inn á mínu nafni en ekki sem smash.

En jæja er í vinnunni svo ég ætla ekkert að blogga af viti. Ætlaði bara að láta vita að ég er á lífi :haha:

magga_ biður að heilsa ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 22:12:03 / Salvör

We meet again!

Jæja fyrsta bloggið mitt hérna í langan tíma!:)

Nú á ég bara eftir að vinna í eina og hálfa viku í Álftamýrarskóla og er að fara norður eftir 10 daga!! Hvítasunnuhelginni verður semsagt eytt í rólegheitum á Vestmannsvatni og þar í kring! Ég vona virkilega að veðrið fari að batna því það er búið að vera vægast sagt ógeðslegt undanfarið!

Ég fór í "vor"ferð í dag í Elliðaárdal þar sem við löbbuðum um þetta fína svæði og ég var alveg að krókna úr kulda!!! Heimsóknin endaði í Árbæjarsafni sem ég hef aldrei farið í áður svo þetta var bara ágætis ferð. Þegar við komum aftur upp í skóla voru tærnar við það að detta af mér og ég var meira og minna gegnfrosin!:(:( Eftir þennan ískalda vinnudag brunaði ég út í Hafnarfjörð til tannlæknis. Ég hef aldrei farið í jafn erfiðan tannlæknatíma. Það þurfti að deyfa mig þrisvar því ég fann alltaf svo mikið fyrir þegar hann var að bora og það var næstum liðið yfir mig úr stressi! Úff!!!

Annars er allt það fína að frétta hjá mér og ég hlakka til að sjá blogg frá ykkur hinum!!:):)

Salvör


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 15:26:39 / Harpa

Ég verð þá fyrst:)

Jæja, þá ætla ég að koma með smá fréttir af mér:)

Ég er búin að sækja um í háskólanum í hagfræði. Ég hlakka ekkert smá til að byrja:) Ég ætla bara að sækja um námslán í haust og vinna ekkert með fyrsta árið... bara vera heima og dúlla mér með drengnum mínum, og svo auðvitað læra:) 
Annars er lítið að frétta af mér, dagarnir mínir fara aðalega í göngutúra, þrífa heima og hugsa um frumburðinn. 
Ég hafði þvílíkt miklar áhyggjur af því að mér ætti eftir að leiðast í fæðingarorlofinu, en að hugsa um barn er bara sólarhrings vinna og það er alls ekki hægt að láta sér leiðast á meðan! :)

Og eitt enn, við erum búin að nefna prinsinn Matthías Björn, í höfuðið á langöfum sínum. Hann verður svo skírður á Hólmavík 4.júní:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 19:24:53 / smash

Á þessi síða að hljóta líf á ný?????

Svarið mitt er já!! Svarið þið í kommentum stelpur!!

Kveðja frá SPÁNÍÁ.....

:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.06.2005 15:57:47 / Sara

Ætlar engin að fara að láta heyra í sér??

Ég ætla allavegana að láta vita að ég er enn á lífi og var líka bara að prófa hvort ég kæmist ekki alveg örugglega inn..:) Er komin með vinnu, er að vinna á skrifstofunni hjá ísbílnum:D Og svo á að skella sér heim til Hólmavíkur á ''Hamingjudaga'' en það verður örugglega gaman...;) kv. Sara

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2005 08:21:07 / smash

ég er að verða brjáluð

Ég get ekki skráð mig inn á mínu nafni. Arrrrrrrgg. Þoli ekki sona

Jæja núna er maður aðeins að chilla áður en maður heldur áfram að fara yfir bókfærslu.

En endilega nenniði að hjálpa mér með innskráningardraslið. ég skrifa notendanafnið og lykilorðið rétt en það vill bara ekki taka þessu.

Og já eitt enn. hvenær  var ákveðið að byrja að nota þetta aftur??

Kv. magga


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2005 09:41:48 / Aldís

Ég...

NENNI ekki að læra meir!!...er komin með ÓÓÓÓGEEEEEÐÐÐ..og samt 4 próf eftir ..og þar af Saga og Náttúrufræði :S

Hjááááálp...ég bara GEEET ekki byrjað á þessari bókfærslu....


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2005 19:07:03 / Harpa

Nú fer þetta að vera búið!

Nú eru prófin bara alveg að vera búin! Ég er orðin svo spennt að klára að ég get varla lært lengur8| Það eru nú bara 6 stykki eftir þannig maður ætti að geta haldið einbeitingunni í gegnum þau!

Hvernig gekk ykkur annars í samræmda ensku prófinu? Mér gekk bara ágætlega, fannst rosalega oft í krossunum að allavega tveir möguleikar ættu við... svo kom það líka fyrir að ég skildi ekki alveg öll orðin í svörunum8| En þar sem kemur hvort eð er engin einkunn fram, bara "lokið", á stúdentsprófsskírteininu þá er mér eiginlega alveg sama!

Ég þurfti að bruna með Gosa minn aftur til dýralæknis í dag. Hann var eina ferðina enn kominn með þennan ofvaxna kirtil í augað og er þetta í þriðja skiptið! Þannig að hann á bara að fara í aðgerð næsta mánudag8| Sem kostar btw littla 17.000 krónur! Ég á eftir að vera rosalega plönk þennan mánuðinn.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2005 14:08:11 / Salvör

Gúten tag!

Úlala...nú er sumarið rétt handan við hornið og við eigum bara nokkur próf eftir! :D Af því tilefni finnst mér ægilega sniðugt að endurvekja sumarbloggið okkar og deila einhverju skemmtilegu um okkar viðburðaríka líf ;)

- Blizzz -
Salvör :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2005 00:12:21 / smash

Þessi síða......

Er ekki starfrækt núna en kannski við opnum hana aftur í sumar :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4